Jæja, ég skellti mér í bíó á Zombieland um daginn og verð bara að segja að hún kom mér líka svona skemmtilega á óvart. Myndin er eftir leikstjórann Ruben Fleischer sem að er nýr af nálinni og hefur ekki gert neitt sem að ég hef horft á en hann stendur sig líka svona vel í þessari mynd. Ég verð að segja að þegar ég sá trailerinn fyrir myndina fyrst þá hugsaði ég okei þetta er svona hlæ hlæ mynd með uppvakningum og prumpubröndurum en svo þegar ég fór á myndina þá kom bara allt annað í ljós.
Myndin fjallar um "Columbus" (Jesse Eisenberg) sem að er lúðalegur unglingur sem að reynir að komast af í heimi fullum af uppvakningum. Til þess hefur hann gert lista yfir reglur, sem eru margar hverjar stórskemmtilegar. Svo einn daginn á meðan hann er að reyna að koma sér til Columbus, Ohio, þá kynnist hann "Talahasse" (Woody Harrelson)en hann ver vægast sagt á kostum í þessari mynd. Talahasse er akkúrat andstæðan við Columbus, hann er nettur, hugrakkur, lifir ekki eftir neinum reglum og myndi gera hvað sem er fyrir "twinkie". Þeir tveir taka sig svo saman og ákveða að vera samferða eitthvað áleiðis, en þegar þeir stoppa til að byrgja sig upp af mat þá hitta þeir 2 harðar gellur sem að fyrir sýkinguna höfðu lifað á því að nota ýmis bellibrögð til að svindla á fólki. Þær "Witchita" (Emma Stone) og "Little Rock" (Abigail Breslin) hafa lítið breyst eftir að heimurinn fer til hundanna og því notfæra þær sér strákana 2 og skilja þá svo eftir.
Myndatakaner til fyrirmyndar, mikið er um virkilega flott slow motion skot og er introið allt skotið í slow mo og er það eiginlega bara virkilega flott. Förðunin ergeðveik í myndinni sem og allar brellur, frá byssuskotum og að fólki að borða fólk þá stenst þessi mynd allar væntingar. Og það er eiginlega bara virkilega nettur blær yfir myndinni. Tónlistin var mjög fín, ekkert til að hoppa upp og dansa fyrir en samt ekkert sem dró myndina niður.
Eftir að ég horfði á þessa mynd þá fór ég aðeins að spá í formúlunum fyrir þessum myndum og byrjaði að bera hana saman við myndir eins og Shaun of the dead og Dead snow og ég komst eiginlega að því að þetta uppvakningar og brandarar dæmi virkar bara fáránlega vel! Ég tengdi það fyrst eftir þessa mynd að ég elska þessa formúlu, ég get horft endalaust á Shaun of the dead, mér fannst Dead snow vera geðveik og svo núna fannst mér sjúklega gaman á Zombieland. Ég held að þessi mynd sé ekki sú síðasta sem gerð er eftir þessari formúlu og ég hlakka spenntur til að sjá hinar smávægilegu breytingar sem gerðar eru á hverri mynd sem að gerir hana frábrugðin hinum. Hvort sem það er aðstæðurnar (Dead Snow), Ólíklegur hópur eftirlifenda (Shaun of the dead) eða myndartakan (Zombieland) hvað sem það verður þá bíð ég spenntur eftir því :D
Í heildina frábær mynd, ekkert æðislegur né djúpur söguþráður, ekkert massíf persónuþróun en frábær mynd samt sem áður.
Eitt kvöldið þá fór ég með strákunum á tvær myndir, fyrri myndin var hin umtalaða Antichrist en sú seinni var hin aðeins minna umtalaða Dead Snow.
Antichrist:
ATH: Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja þannig að ég ætla bara að skrifa allt sem ég hugsa og ef það kemur út sem chaos þá biðst ég afsökunnar en ég held að það sé eina leiðin til að tjá skriflega hvað mér fannst um þessa mynd.
Antichrist er mynd eftir leikstjóran Lars Von Trier og hún fjallar um mann og konu en þau bera engin nöfn í myndinni og eru einfaldlega titluð sem He og She. Myndin er semsagt um það hvernig konan tekur á því að hafa misst litla strákinn sinn sem að deyr af slysförum í upphafi myndarinnar. Ég ætla ekki að tala mikið um söguþráðinn í myndinni heldur ætla ég frekar að tala um myndina í heild sinni.
Upphafssenan í myndinni eru sennilega bestu 4-8 mínútur af kvikmynd sem ég hef séð. Blái tónninn yfir myndinni, tónlistin, slow motion og skotin spiluðu svo vel saman að þetta var eins og að horfa á sinfóníu og sjá tónlistina. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu mér fannst þetta svo töff. Vá, sko... Þegar ég hugsa svo til baka og renni atriðinu í gegnum hausinn á mér þá voru fullt af litlum smáatriðum í upphafssenunni sem gáfu til kynna hvað væri mikilvægt seinna í myndinni, eins og stytturnar þrjár á borðinu. Ég hefði viljað vera viðstaddur þegar þetta atriði var tekið upp til að sjá hvernig Lars Von Trier tókst að gera svona magnaða senu.
Restin af myndinni innihélt stórfurðulegan en magnaðan söguþráð og þegar ég hugsa til baka þá finnst mér hann geðveikur í augnablikinu en ég er búinn að flakka á milli skoðana eins og sínusbylgja.
Skotin þar sem konan er að ímynda sér það að hún sé að labba í skóginum eru ein þau áhrifamestu og flottustu sem ég hef séð. Á meðan ég er að skrifa um þessa mynd þá rennur það upp fyrir mér að þetta var meira listaverk frekar en kvikmynd. Mikilvæg atriði fyrir söguþráðinn drukkna einfaldlega í fegurð hinna ýmsu skota.
Ég veit ekki hvað ég á að segja, leikurinn í myndinni var góður, það er það eina sem ég er viss um. Þegar ég labbaði út úr bíósalnum þá vissi ég ekki alveg hvað hafði gerst þarna inni, ég vissi ekki alveg hvað mér fannst um það og ég gat ekki ákveðið mig hvort að þetta væri mesta meistaraverk kvimyndasögunnar eða algjört drasl. En eins og Siggi Palli sagði: "Þú getur huggað þig við það að einhversstaðar situr Lars Von Trier núna og hlær"
Ég myndi segja að það væri skylda allra að sjá þessa mynd. Ekki af því að hún er geðveik heldur bara til að heyra fleiri skoðanir, ef þið getið myndað ykkur skoðun á henni (sem ég get ekki).
X stjörnur af 5 mögulegum... sjáum til eftir nokkra daga hvað mér finnst þá, og svo aftur nokkra daga eftir það...
Dead Snow:
Okei úr mesta mindfucki sem ég veit um og yfir í basic stuff. Dead Snow er mynd eftir leikstjórann Tommy Wirkola og fjallar um hóp af læknanemum sem að fara í fyllerísferð upp í fjallaskála.... Og svo eru Nasista uppvakningar... þarf ég að segja meira? Myndinni tekst mjög vel að vera það sem hún á að vera, skemmtileg. Hún er ekki ógeðslega scary, hún er ekki ógeðslega vel leikin og umfram allt hún er ekki RWWM. En maður kemst varla hjá því að bera þessar tvær myndir saman og í þeim bardaga vinnur Dead Snow með rothöggi í fyrstu lotu.
Ég persónulega hló upphátt þegar gamli creepy kallin fór að tala um gyðingagullið en það gæti bara verið útaf því að ég horfi of mikið á south park. En semsagt söguþráðurinn er þannig að þessir læknanemar fara upp í fjallaskálann til að skemmta sér en þau byrja að hafa áhyggjur þegar kærasta eins gaursins (sem ætlaði að skíða að skálanum) lætur ekki sjá sig. Um kvöldið kemur síðan creepy gamall kall í heimsókn og fer að vara þau við fjallinu og segir þeim söguna um Nasistaherforingjann og hermenn hans sem voru hraknir af bæjarbúum upp í fjöllin eftir að Þýskaland missti tak sitt yfir staðnum. En áður en þeir fóru þá rændu þeir fullt af gyðingagulli og verðmætum og tóku með sér. Nú geta þeir ekki hvílst í friði fyrr en að allt gyðingagullið er komið aftur í þeirra hendur.
Í heildina tekst myndinn mjög vel upp og minnti hún mig mikið á Shaun of the dead, þá sérstaklega senan þegar þeir eru að ná í vopnin inn í skúrnum. Snöggar klippingar af flestum hreyfingum og svo vítt skot á báða aðila með vopnin. Þessi sena er eiginlega nákvæm eftirlíking á því þegar Shaun og Ed fara og ná í vopn út í skúr í shaun of the dead og er þessi stíll einkennandi fyrir myndirnar hans Simon Pegg og ég giska á að Tommy Wirkola hafi séð hana og fílað þetta.
3 af 5 stjörnum fyrir vel heppnaða og skemmtilega splattermynd.
Þegar ég komst að því að þessi stórepíska mynd yrði sýnd á RIFF þá varð ég strax frekar spenntur. Þegar ég komst svo að því að það væri eiginlega uppselt á hana þá varð ég strax frekar stressaður. Þegar ég náði síðan að kaupa miða á hana þá varð ég strax frekar ánægður. Þessi mynd hefur lengi verið ein af mínum uppáhalds söngleikjamyndum og mig hefur alltaf langað til að sjá hana í bíó. Sú löngun magnaðist mikið núna fyrir stuttu eftir að mamma mín sagði mér frá því að hún hefði farið á singalon sýningu úti í Dallas á sínum tíma þar sem fólk mætti í búningum og með leikmuni.
Svo var loksins komið að því ég var að fara að sjá þessa mynd í bíó. Ég og mamma mættum í Háskólabíó á skikkanlegum tíma og náðum okkur í aukahluti sem að allir fengu til að hafa með myndinni. Hrísgrjón til að kasta upp í loftið í brúðkaupssenunni, dagblöð til að skýla manni frá rigningunni (og það voru gæjar efst í salnum að skvetta vatni yfir alla), partýhatta til að setja upp í "timewarp" partýinu, klósettpappír til að henda í hinn leiðinlega Dr. Everett Scott og margt fleira. Ég varð spenntari með mínútunni. En svo fóru að líða of margar mínútur, það var komin löng röð fyrir utan salinn og klukkan var orðin 11, og svo 11:15 og svo 11:30 og enginn vissi hvað var í gangi. En svo opnuðust dyrnar og pirringurinn vék fyrir spennunni. Eftir að allir höfðu sest (og það kom í ljós að of margir miðar höfðu verið seldir) þá kom stelpa klædd sem Little Nell uppá sviðið og bauð alla velkomna og myndin fór í gang.
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í salnum þegar rauðu varirnar birtust á svarta bakgrunninum og svo byrjaði söngurinn. Og hann hætti ekki, nema til að víkja fyrir fagnaðarlátum, þangað til að myndin var búin. Strax að loknu introinu kom fyrsta prop atriðið, brúðkaupið, og allt í einu var allur salurinn út í hrísgrjónum. Svo hélt myndin áfram senu eftir senu og allir sungu með hverju lagi og töluðu með öllum samtölum. Þegar var svo komið að partýinu þá fylltist sviðið fyrir framan hvíta tjaldið af dönsurum og leikurum í búningum og allur salurinn stóð upp og dansaði "the timewarp"
-It's just a jump to the left- -And a step to the riiiiight- -Put your hands on your hips- -and tuck your knees in tiiiight- -then it's the pelvic thruuuust, that really drives you insaaaaaane- -Let's do the timewarp again- -Let's do the timewarp again-
og þegar Tim Curry a.k.a Dr. Frank-N-Furter kom niður í lyftunni trylltist salurinn. Eftir party atriðið var sviðið rýmt og myndin hélt áfram með tilheyrandi söng og dans stemmara og fyrir minn hlut þá var þetta ein skemmtilegasta kvöldstund sem ég hef átt í bíó!
En þá um myndina:
Rocky Horror (1975) er mynd eftir leikstjórann Jim Sharman og fjallar um verðandi hjónin Brad Majors (Barry Bostwick) og Janet Weiss (Susan Sarandon) sem að leita hjálpar í stórum kastala eftir að það springur dekk á bílnum þeirra. Þegar þau baka uppá kemur Riff Raff, a handyman (Richard O'Brien) og býður þeim inn til að hringja. En það verður ekki svo auðvelt að fá að hringja eitt símtal. Parið dregst inn í party hjá "húsbóndanum", sem er brjálaður, tvíkynhneigður og stórsnjall vísindamaður og klæðskiptingur að nafni Dr. Frank-N-Furter (Tim Curry, sem fer algjörlega á kostum í þessu hlutverki).Eftir það fer af stað vægast sagt stórskrýtin atburðarrás með innskotum frá sögumanninum (The Criminologist - An Expert (Charles Gray)), sem að ég ætla ekki að spoila hérna.
Tónlistin í myndinni er æðisleg, lögin eru skemmtileg, full af háði og grípandi og þig langar voða lítið annað en að hlusta á þau aftur og læra þau til þess eins að geta sungið með næst þegar þú horfir á myndina.
Leikurinn í myndinni er afbragð. Tim Curry nær að fanga geðbilunina í Frank-N-Furter á tranepískan hátt og fer hann vægast sagt á kostum í þessari mynd. Barry Bostwick nær vandræðaleikanum hjá Brad Majors æðislega vel og Susan Sarandon lætur alla trúa að Janet Weiss sé svo saklaus og hrein að hún hafi ekki einu sinni hugsað eina ljóta hugsun yfir ævina. Aðrar persónur eins og Little Nell, Magentha, Riff Raff, Meatloaf og Rocky eru líka leiknar snilldarlega, þá sérstakleg stórfurðulega sambandið milli Riff Raff og Magenthu. Persónuþróunin í myndinni er líka mjög mikil og það liggur við að þú sjáir breytingu á hverri persónu með mínútu fresti, það gerir myndina trúverðuga á þann hátt að ef þú værir fastur í kastala með kærustunni þinni hjá brjáluðum klæðskipting sem er nýbúinn aðbúa til mann úr engu og sem syngur lög með reglulegu millibili þá myndi þetta gerast svona.
Myndartakan er líka góð eins og flestallir aðrir hlutir í myndinni, ekkert sem að sker í augun né neitt sem skarar hrikalega mikið fram úr. Tæknibrellurnar í myndinni eru hlægilegar í dag en voru barn síns tíma. Sviðsmyndin er æðislega steikt og gefur myndinni þennan skemmtilega karakter sem einkennir hana ásamt búningunum.
Ég veit varla hvað ég á að segja meira um þessa mynd. Ég er nokkuð viss um að skoðun min á henni hafi komið greinilega fram í blogginu þannig að ég ætla ekki að eyða óþarfa orðum í hana hér. Það er þá bara ekkert eftir en stjörnugjöf. 4 af 5 mögulegum.
Ég fór á 2 myndir í gær á RIFF og það er á planinu að fara á nokkrar í dag og svona. En myndirnar sem ég fór á voru þær Prodigal Sons og Kelin.
Prodigal Sons er heimildarmynd eftir leikstýruna/stjórann Kimberly Reed og fjallar um ríginn á milli hennar óg bróður hennar Marc. Þetta eru engar venjulegar systkinaerjur eins og mörg okkar kannast við heldur eru aðstæðurnar frekar mikið öðruvísi. Hún Kimberly (fyrrum þekkt sem Todd) var aðalmaðurinn í High school, hún var fyrirliði ruðningsliðsins og átti kærustur en það var ekki allt í lagi í draumalandi þar sem að hún var í vitlausum líkama. Todd var ekki sá sem hún átti að vera og á endanum þá flutti hún burt frá heimabæ sínum í Montana og fór í kynskiptiaðgerð. Aðstæðurnar hjá bróður hennar eru heldur ekki eins og best er á kosið því að hann lenti í bílslysi 21 árs gamall og hlaut við það heilaskaða. Eftir það fór hann að fá flog og þurfti á endanum að fjarlægja hluta af heilanum á honum og það orsakaði miklar skapsveiflur. Mikil ósætti ríktu á milli Marc og Kim og snýst myndin í rauninni um þrjá hluti: Lausn á vandamálunum á milli Marc og Kim, ástand Marcs og kynskiptiaðgerðina sem Kim fór í og hvernig hún tókst á við allt það sem fylgdi henni. Þessi mynd er mjög áhrifarík og hún kynnir manni fyrir mjög öfgafullum aðstæðum og maður kemst varla hjá því að finna til samúðar með bæði Kim og Marc. Maður vorkennir Marc útaf ástandinu sem hann er í og maður vorkennir Kim útaf því að sama hvað hún reynir mikið að bæta samband sitt við Marc þá virðist það ekkert ganga því þegar hann fer í brjálæðiskast þá breytist hann í eitthvað annað en hann er. Í heildina mjög góð og áhrifarík mynd og ég mæli algjörlega með henni.
FANN ENGA MYND :(
Kelin er já..... mynd eftir Ermek Tursunov og er já.... sérstök að mörgu leiti. Það er ekkert talað í myndinni heldur er bara öskur og stunur sem gefur myndinni já... ákveðinn blæ. Myndin fjallar um unga konu sem að fer að heiman til að búa með eiginmanni sínum ( sem hún var neydd til að giftast), yngri bróðir hans og gamalli móður hans. Svo er hérna söguþráðurinn í myndinni einfaldaður fyrir ykkur.. VARÚÐ SPOILERAR
Kona giftist manni. Maður sefur hjá konu útí skógi. Maður kemur heim með konu. Maður og kona sofa saman á meðan litli bróðir stundar sjálfsfróun yfir stunum. Maður fer út að ná í eldivið. Maður er drepinn af öðrum manni. Mamman fer með galdraþulu. Kona sefur hjá litla bróður mannsins. Kona sefur hjá hinum manninum (sem drap eiginmanninn hennar). Litli bróðir mannsins sefur hjá geit. Kona verður ólétt. Mamma fer með galdraþulu og tekur af henni hárið. Hinn maðurinn kemur og sækir hana. Litli bróðir mannsins reynir að drepa hann en deyr sjálfur. Mamman kemur af stað snjóflóði og drepur hinn manninn en konan sleppur. Konan kemur aftur heim til Mömmunnar. Mamman þekkir hana ekki og reynir að kyrkja hana. Konan fæðir barn og mamman gefur henni vúdú prikið sitt og labbar út. Úlfar spangóla (og við getum dregið þá ályktun að mamman hafi farið til að deyja). Endir
Já.... þessi mynd var... spes :) Voða lítið annað hægt að segja. En stefnan er sett á Rocky Horror í kvöld ég veit ekki alveg hvort að ég eigi að þora að biðja Kimberly Reed um búningaráð en hún ætti nú að kannast við það að klæða sig upp sem meðlimur af hinu kyninu. En við sjáum til. Ég hlakka allavega mjög mikið til að sjá þessa mynd í bíó enda er þetta ein af mínum uppáhalds söngmyndum og þar sem að mamma mín elskar hana svona mikið líka þá keypti ég einn miða handa henni. Fjölskyldubonding time í kvöld :D
Ég ætla að byrja á að skella inn treiler fyrir ykkur:
Jæja, eftir langa bið og mikla eftirvæntingu þá skellti ég mér loksins á District 9 í bíó. Ég mætti í bíóið í hasargírnum og tilbúinn í 2 tíma af byssubardögum á milli manna og geimvera. Ég fer inn í salinn og sest á brúnina á sætinu og svo loksins byrjar myndin. Og þá er þetta bara eitthvað heimildarmynd, eitthvað viðtal við einhvern vandræðalegan gæja sem að talaði með skrýtnum hreim. Þarna fór ég að hugsa: hmm.... hvað er í gangi? En ég ákvað að halda opnum huga og beina athyglinni frekar að myndinni heldur en stelpunni við hliðina á mér og GUÐ hvað ég er feginn! Þegar ég lýt til baka núna á myndina sem heild þá verð ég að segja að þessi heimildarmynda stíll sem að myndin var í var tær snilld. Ég sem fór þarna inn og bjóst við einhverju stanslausu og hardcore stríði í tvo tíma sem að skilur ekkert eftir sig nema awesome fílíng í hausnum á strákum en þegar ég gekk út þá sat svo miklu, miklu meira eftir.
Það að ég bjóst við þessari standard Hollywood sci-fi mynd gerði upplifunina svo miklu skemmtilegri því að myndin er gerólík því sem við eigum að venjast. Myndin gerist í Jóhannesborg í Suður Afríku 20 árum eftir að geimverur lentu á jörðinni. Þegar fyrstu kynnum var náð voru geimverurnar vannærðar og í skelfilegu ástandi. Mannfólkið tók sig því til og bjó til búðir fyrir „rækjurnar“(eins og þær eru kallaðar) þar sem þær fengu mat og læknisaðstoð. Núna 20 árum seinna hafa þessar búðir breyst í einangrað fátækrahverfi sem kallast District 9 og eftir að glæpum fer að fjölga hjá geimverunum þá eru þær ekki lengur velkomnar. Þarna setur leikstjórinn Neil Blomkamp upp fordómana sem að eru ríkjandi gegn þeim sem lifa í fátækrahverfum Suður-Afríku upp á áhugaverðan hátt sem að fær mann til að hugsa. Neil Blomkamp gerir þarna í frumraun sinni raunsæa sci-fi mynd sem að er uppfull af ádeilum á nútímasamfélag. Með þessari mynd er hann meðal annars að færa rök fyrir því að það skipti ekki máli af hvaða kynþætti eða tegund þú ert að þar sem er fátækt eru glæpir.
Myndatakan í myndinni var afbragð og það er nokkuð ljóst að Peter Jackson kann að velja sér lærlinga. Neil Blomkamp notaði þessar 30 milljónir, sem að Peter Jackson gaf honum til að framleiða hvaða mynd sem hann vildi, afbragðsvel og við sjáum vonandi meira frá honum sem fyrst.
Annar kostur við myndina að mínu mati er það að það var ekki eitt ofnotað Hollywood andlit í myndinni og sú staðreynd að hvert einasta óþekkta andlitið skilaði góðri frammistöðu. Sérstaklega Sharlto Copley sem lék aðalhlutverkið (Wikus Van De Merwe). Geimverurnar skiluðu líka sínu og voru frábærlega vel gerðar. Svipbrigðin á þeim létu mann meira að segja stundum finna til samúðar með þeim en það er eitthvað sem ég hef ekki séð frá því að ég sá Gollum í LOTR. Tónlistin í myndinn er líka fín en ekkert það spes að ég vil fara og kaupa soundtrackið en hún þjónar sínum tilgangi vel
EN.... já það er alltaf en. Þessi mynd var ekki fullkomin, langt því frá. Hún hafði í rauninni það mikið af göllum að ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir að hafa velt henni í gegnum hausinn á mér nokkrum sinnum. Jújú góð mynd, öðruvísi og ágætis afþreying en hún er svolítið uppblásin.
NÚNA KOMA SPOILERAR EKKI LESA ÁFRAM NEMA AÐ ÞIÐ HAFIÐ SÉÐ MYNDINA
Þrátt fyrir að flæði myndarinnar hafi verið það gott að sagan virtist vera heilsteypt og meika fullkomið sense þá koma nokkrar holur í plottinu í ljós þegar maður fer virkilega að velta því fyrir sér.
1.Geimverurnar eru búnar að búa þarna í 20 ár og það virðist sem svo að mannfólkið hafi varla átt samskipti við þau enda eru þær lokaðar inn í fátækrahverfi og hafa ekkert blandast almennu samfélagi en samt skilur mannfólkið þeirra klik klik tungumál og geimverurnar skilja ensku
2.Aðalrækjan er búin að eyða 20 árum í að finna einhvern vökva til að búa til eldsneyti fyrir geimskipið (sem að svífur samt einhvernvegin yfir D9 í 20 ár) og svo loksins þegar hún finnur hann og býr til eldsneytið þá sullar Wikus helmingnum yfir sig en samt er þetta nóg til að koma skipinu heim. Rækjan segir meira að segja í myndinni að hún verði að fljúga hratt heim til að klára ekki eldsneytið en skv. öllu þá þýðir meiri inngjöf meiri nýting á eldsneyti.
3.Afhverju í fjandanum breytist Wikus í geimveru við það að sulla yfir sig bensíni??
4.Litla skipið sem að þau nota til að koma sér uppí móðurskipið féll til jarðar þegar rækjurnar lentu. Sá ENGINN hvar það lenti áður en það var byggt yfir svæðið?
5.Litla rækjubarnið sem að aðalrækjan átti kveikir á dráttargeisla í móðurskipinu úr litla skipinu sem að dregur litla skipið upp í móðurskipið (vá skrýtin setning en okei) Afhverju þurftu þeir þá eldsneyti til að fljúga á litla skipinu upp í móðurskipið? (sérstaklega þar sem hann setur aldrei bensín á stóra skipið)
6.Til að ná fyrstu kynnum við geimverurnar þá boruðu mennirnir stórar holur í skipið til að komast inn í það. Hvernig er ennþá hægt að fljúga á milli sólkerfa í þessu skipi?
7.1.8 milljónir rækja og það er ein sem hefur nóg vit í kollinum til að gera við eitthvað af þessu dóti. Hvernig getur það verið að heill geimverukynþáttur sé svona heimskur en samt hafi þeim tekist að búa til skip sem kemst fram og til baka á milli vetrarbrauta á 3 árum?
8.Í einu atriði þá er Wikus og aðalrækjan með tvær geimverubyssur og sigra bara heilan her af þjálfuðum hermönnum. Sem og í lokin þegar Wikus er að berjast í stríðstækinu þá rústar hann bara heilli hersveit án þess að hafa nokkurntíman notað svona vopn áður. Afhverju hafa geimverurnar ekki notað eitthvað af þessum vopnum á þeim 20 árum sem mannfólkið hefur haft þær lokaðar inni í fátækrahverfi og kúgað þær og misnotað? Og það er ekki hægt að segja að þær séu friðsamar verur því að glæpatíðnin er mjög há í D9
9.Þegar Wikus reynir að fljúga litla geimskipinu upp í móðurskipið (án þess að hafa nokkurn tíman flogið geimskipi þá tekst honum það afarvel) þá er það skotið niður með eldflaug en þegar dráttargeislinn er að draga það upp þá er ekkert gert til að stöðva það.
Þetta eru svona helstu holurnar sem að ég tók eftir þegar ég fór að spá í myndinni daginn eftir en það eru nokkrar í viðbót sem að ég er búinn að sjá og taka eftir eftir að hafa lesið um myndina aðeins á netinu.
Annað sem fór í taugarnar á mér var þróunin á persónunum. Hún var engin.... jú smá hjá Wikus en annars voru öll tilfinningarleg tengsl yfirborðskennd og grunn og skildu ekkert eftir sig. Þetta var það eina sem að ég tók eftir á meðan ég var að horfa á myndina og þetta fór smá í taugarnar á mér.
HÉRNA ENDA SPOILERAR OG KEMUR NIÐURLAG
Okei, myndin hafði slatta af göllum en það að ég tók ekki eftir þeim fyrr en að hafa pælt virkilega mikið í myndinni á mjög gagnrýninn hátt og það að ég fór útúr bíóinu mjög sáttur með myndina og fannst hún æðisleg segir alveg sitt. Þessi mynd var mjög fín skulum við segja. Hún var öðruvísi en ég bjóst við og kom skemmtilega á óvart með ádeilunum. Í heildina góð mynd en það er margt sem mætti betur fara. Ég vona samt að sci-fi kvikmyndagerðarmenn taki þessa mynd til fyrirmyndar að hluta til því að það sem var gert nýtt í þessari mynd var gert mjög vel.
3 stjörnur af 5 mögulegum hjá mér, góð mynd en hefði getað verið betri með aðeins meiri vinnu.